Prófíll

  • Nafn: Jason A og Marín A

Auglýsing

Klukkan

Tenglar

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Myndir

15. mars 2008 klukkan 12:35
Hæhæ ég er að reyna að opana fyrir til að við getum sett inn myndir en það er bara ekki að gerast :(
Ætli ég reyni ekki að nota aðra síðu til að setja upp myndir
Jason A og Marín A
1 athugasemd

Hún er orđin 4ára prinsessa :)

04. febrúar 2008 klukkan 18:05

Vá, prinsessan okkar er orðin 4ára. Mér finnst svo stutt síðan Jason og pabbi komu uppá fæðingardeild að náí litlu systir og mömmu :)
Við héldum uppá afmælið á laugardaginn þarsem afmælið hennar er núna á mánudegi og meirisegja það er bolludagur :) Við buðum uppá bollur og fleira gotterí í afmælinu og var margt um fólk. Takk æðislega fyrir komuna og skvísuna :) Ég man svo vel eftir þegar skvísan ákvað að nú væri tími til komin að kíkja í heiminn, við vorum sofandi heima í ljósheimum og hún byrjaði um kl 00. að láta vita af sér, svo kl 2. hringdi ég uppá spítala því það voru 5mín á milli þær sögðu mér að koma... Ég hringdi í pabba og bað hann um að koma og hugsa um Jason, Ég vildi ekki vekja Jason minn leifði honum bara að sofa. Ég hringdi einig í Heiðu og bað hana um að koma um kl 6 og taka við vaktina hans pabba þarsem hann þurfti að fara til kef. í vinnu. Heiða sagði mér að þegar Jason vaknaði og hann horði á hana og spurði svo hvar er mamma? Heiða sagði að mamma hafi farið uppá spítala a eiga litla barnið og hann bara já ok. þá var allt í lagi :) Hann er ótrúlegur.... Fæðingin gekk mjög vel, við vorum komin um kl 3 uppá spítala og Marín var komin í heimin kl 8:44. Og vá hvað það var skrítið að fá hana í fangið og bara róleg heit enginn hasar bara við og ljósmæðurnar... Marín Aníta fékk nafnið sitt um leið og við sáum að stelpa hafi fæðst :D
Takk æðislega fyrir komuna og stelpuna :)
Svo í dag á sjálfan afmælisdaginn fór Marín í leikskólan og það var haldin veisla henni til heiðurs :) Og svo gerði hún kóronu. Mamma náði í Marín snemma og fórum við í kringluna og fóru Jason og Marín í ævintýraland á meðan pabbi og mamma versluðu ;) Eftir ævintýraland bað Marín afælisbarn um ís og auðvitað fékk hún ís og hún bauð bróðir sínum uppá ís  :)
H'un á afmæli í dag
hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hún Marín Aníta
Hún á afmæli í dag

Hún er 4ára í dag
Hún er 4ára í dag
Hún er 4ára hún Marín Aníta
Hún er 4ára í dag
 
Til hamingju ástin okkar elskum þig sæta... kossar og knús mamma,pabbi og Jason alexander :D


Jason A og Marín A
1 athugasemd

Ćđisleg helgi

12. janúar 2008 klukkan 13:37
Helgin okkar byrjaði á fimmtudaginn þegar hann Torfi afi okkar kom til okkar :)
Hann gisti hjá okkur í Marínar herb. 1sinn sem hann gistir hér hjá okkur :)
Vá, hvað við vorum s pennt  að fá hann.
Svo á föstudeginum fórum við auðvitað í skólan og leikskólan, þegar Jason var búinn í skólanum kl 14 þá var Marín komin heim og það var brunað af stað til Grindavíkur á nýju rútunni hans Torfa afa :) Til hamingju með rútuna Torfi afi :) Við vorum komin til Grindavíkur rétt fyrir kl 15 til að skrifa undir íbúðarkaupin :) Rétt eftir kl 15 eignuðumst við hús í Grindavík :) með mikilli hjálp frá Torfa afa okkar, Til hamingju með húsið Torfi afi og takk æðislega fyrir allt.
Svo þegar við vorum búin í Grindavík þá var farið af stað heim til Victor Breka hann var að halda uppá 7ára afmælið sitt:) Til hamingju með afmælið sem verður á þriðjud. á meðan við vorum þar fengu mamma og Torfi afi að fara út að borða til að fagna nýja húsinu :)
(greyið hann pabbi okkar hann missir alltaf af öllu fjörinu og er alltaf vinnandi kallinn) Núna á meðan mamma er að skrifa þetta hvar haldiði að við séum??? Auðvitað í sundi með honum Torfa afa, vá álltaf sama dekur þegar Torfi afi kemur til okkar. Eitthvað sem segir mömmu að tveir gríslingar muni svo biðja afa um eitthvað gotterí þegar sundið er búið :)
Helgin gæti ekki  hafa verið betri :)
Stefnum á að flytja helgina 31 Maí -1 jún :)
Jason A og Marín A
3 athugasemdir

Jól og áramót

03. janúar 2008 klukkan 18:58
Góðan dag.
Við fórum í jólafrí 20desember. Og þá var farið að gera allt klárt fyrir jólin :) Við skreittum jólatréið okkar 22.des þarsem frænka okkar var að gifta sig þann 23.desember :) Til hamingju Harpa og Björgvin með girftinguna og Victor Breki og Karen Inga til hamingju með mömmu og pabba :)
Svo 24 desember. vöknuðum við snemma og mamma fór og kláraði að fínpússa allt fyrir kvöldið :)
Við settumst svo við matarborðið um kl 18 :) Við borðuðum æðislegan hamborgarahrygg sem pabbi bjó til og vá hvað hann var góður :D
Eftir matinn var allt tekið til og svo var farið að opna alla pakkana og takk æðislega fyrir okkur :D
Svo ætluðum við að fara í skírn hjá litla frænda okkar þann 25des. Við lögðum af stað en urðum að snúa við þarsem veður var ekki gott :(
En litli frændi okkar fékk það fallega nafn Arnór Leví :) Til hamingju með nafnið :)
Svo 26-31 var bara rólegheit hjá okkur.....
31, voru allir spenntir fyrir að fara skjóta upp og kannski of spenntir þarsem fólk vaknaði snemma og átti erfit með að vaka:S En það tókst og var farið út að skjóta upp rétt fyrir kl 00:00....
Svo var farið inn og gert sig kláran fyrir svefninn :)
Þann 1.jan hringdum við svo í Jörgínu ömmu og Ingólf afa þarsem þau giftu sig þennan dag fyrir 14 árum síðan :) Til hamingju amma og afi....
Jason A og Marín A
Engin athugasemd

Smá saga

31. október 2007 klukkan 23:22
Marín Aníta er farin að segja okkur sögur hér er ein sem ég man svona nokkurnveginn.
Draumaprinsinn býr langt langt í burtu, ég ætla að hitta hann á morgun, hann er sætur. Hann á hund og kisu hundurinn er svona stór ( sýndi með höndum) og kisan er alveg svona pínu pínu lítil.
Ég ætla að labba til hans og kyssa hann.
Svo hefur hún sagt mér frá því þegar hún og Máni vinur sinn fóru í ferðalag um allan heiminn og Máni keypti nammi..
Gaman að heyra hvað hún er byrjuð að tala mikið og hún er sko með ímyndunarafl móður sinnar :) Enda þeir sem þekkja hana taka eftir því þegar hún dettur inní sinn drauma heim :)
Jason A og Marín A
3 athugasemdir

Smá saga

31. október 2007 klukkan 23:22
Marín Aníta er farin að segja okkur sögur hér er ein sem ég man svona nokkurnveginn.
Draumaprinsinn býr langt langt í burtu, ég ætla að hitta hann á morgun, hann er sætur. Hann á hund og kisu hundurinn er svona stór ( sýndi með höndum) og kisan er alveg svona pínu pínu lítil.
Ég ætla að labba til hans og kyssa hann.
Svo hefur hún sagt mér frá því þegar hún og Máni vinur sinn fóru í ferðalag um allan heiminn og Máni keypti nammi..
Gaman að heyra hvað hún er byrjuð að tala mikið og hún er sko með ímyndunarafl móður sinnar :) Enda þeir sem þekkja hana taka eftir því þegar hún dettur inní sinn drauma heim :)
Jason A og Marín A
Engin athugasemd

jibbý

29. október 2007 klukkan 17:17
Við erum að fara til Tálknafjarðar núna á fimmtudaginn:)
Jason verður þá í vetrarfríi og við ætlum að nota tækifærið og skreppa vestur. Því miður skiljum við pabba eftir heima (eins og oft áður)
Það verður þá bara skemmtilegra að koma heim aftur :)
Við ætlum að vera inná Gileyri sveitinni hans afa :)
Við erum nátturulega búin að ákveða að fara í sund með afa :) (vonum að veðrið verði gott)
Ætli við förum ekki líka með í vinnuna, alltaf hægt að fynna sér nóg að gera í sveitinni, svo ætlum við að reyna að fara á árabátinn sem lang afi okkar átti... Það er svo gaman að fara í sveitinna :D Getum ekki beðið eftir að komast smá í burtu frá borginni :)
EN vitiði hvað hænurnar hans afa hefur fækkað svoldið. Afi grunaði mýnkinn og setti upp gildru en ekkert virkaði. Svo einn daginn kom maður til afa og spurði hvort það hafi fækkað í hænsnabúinu og afi sagði að það passaði. Maðurinn sagðist hafa keyrt á ref með hænu í kjaftinum rétt hjá húsinu hans afa. Þannig ráðgátan var leyst, Mynkurinn var þá saklaus eftir allt saman..... En hvað það verður um þessar 2 hænur sem eftir eru vitum við ekki.. Ekki gaman að vera bara tvær saman.
Jæja heyrum í ykkur þegar við komum aftur heim...
kveðja Jason og Marín
Jason A og Marín A
Engin athugasemd

gaman

06. september 2007 klukkan 20:58

Jæja seinustu helgi átti hún mamma okkar afmæli og afi kom og keypti sér bara nýjan bíl til að halda uppá daginn :) En við fórum út að borða með afa og svo á sunnudeginum fórum við að skoða kannski nýju húsin okkar, hver veit???
Jason er farinn á fullt í skólanum og er hann með gamla kennaran hennar móður sinnar :P Það er búið að ákveða að Jason fái smá hjálp við lesturinn og erum við mjög ánægð með það og Jason er mjög sáttur líka :) (númer 1,2,3 að hann sé sáttur) Marín var hjá hjartalækni í dag og það er búið að staðfesta það að hjartað hennar er fullkomlega heilbrigt bara vill láta það hljóma öðruvísi :) (eða þessi aukahljóð eru saklaus, ekkert gert við þeim, mjög algengt) En vinstra eyrað er enþá að angra hana eins og alltaf :( það blæður úr því og það er farið að koma þessi ógeðslegi vökvi úr því, hún fer til doksa á mánudaginn en er komin með þessa dropa sem gera ekkert fyrir hana, ég var að pæla hvort er betra, Marín alltaf illt í eyranu (með rör) Marín heyrir ekkert með eyranu en er ekki illt í eyranu (án rör) Henni leið vel að vera ekki með rör og var það bara sett í til að athuga hvort það væri vökvanum að kenna að hún heyrði ekki með vinstra eyra, sem reyndist svo vera. En hún var alltaf hress þótt hún heyrði ekkert og það var ekkert að angra hana, hún heyrði þó með hægra. Núna er hún veik :( akkurat öfugt við það sem rörin eiga að gera.....

ekkert meir kveðja Jason og Marín

Jason A og Marín A
Engin athugasemd

tíminn líđur alltof hratt

24. ágúst 2007 klukkan 22:25
Hann Jason okkar er kominn í 2 bekk alveg að verða 7ára gamall. Vá það eru 7ár síðan við urðum foreldrar, mér fynnst svo stutt síðan....
Og hún Marín litla barnið er orðin 3 1/2 ára og farin að tala ensku eins og Dóra explorer :) hún ætti kannski að vera eins dugleg að tala íslensku hún segir alltaf: mamma ég er home (mamma er komin heim) Let's go (þá meinar hún af stað) svo hún skilur alveg hvað hún er að segja sko....
Það er annars allt gott að frétta af okkur :) Höfum bara ekkert meir að segja
Jason A og Marín A
Engin athugasemd

Alltaf eitthvađ ađ gera

24. júlí 2007 klukkan 22:03
Við viljum byrja á því að óska Agnesi Emblu,mömmu hennar og pabba til hamingju með prinsessuna sem fæddist 20júlí :) Og einnig viljum við óska prinsessunni til hamingju með nafnið sitt Elísa Ásta :)
Það sem er búið að vera gerst hjá okkur undafarið er auðvitað að Marín er bara búin að vera jafna sig eftir aðgerðina.
Svo átti pabbi afmæli 19júlí og við fórum út að borða svo 20 júlí eignuðumst við litlaa frænku :)
22 júlí fórum við í heimsókn til ömmu og afa í grindavík og vá hvað mamma varð sjúk í grindavík þá við getum ekki lengur beðið eftir að flytja. Svo fengum við svo flottar kræsingar að við getum bara sagt nammi namm:P
Það var geggjað stuð há okkur við afi fórum í smá vatnslag :)
23júlí bauð Harpa Dögg frænka okkar okkur uppí bústað í Skorradal. Við gistum þar og fórum svo í sund og fengum okkur pizzu í dag þegar við vöknuðum.
Victor Breki frændi okkar kom svo með okkur og gistir hjá okkur í nótt, hefðum sko alveg viljað að Karen Inga litla systir hans hefði verið hér líka,  það er ein hérna heima sem saknar hennar mikið :)
heyrumst. bæbæ
Jason A og Marín A
1 athugasemd